Sammála um að auka tíðni strætóferða

Beðið eftir strætó.
Beðið eftir strætó. mbl.is/hag

Allir flokkar í borgarstjórn Reykjavíkur lýstu sig í dag fylgjandi tillögu Samfylkingarinnar um að tíu mínútna tíðni á stofnleiðum Strætó verði tekin upp að nýju. Samkvæmt því sem kemur fram í tilkynningu frá Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar, ætti að vera hægt að auka tíðni strætó í áföngum á komandi kjörtímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert