Fíkniefni fundust við húsleit í Kópavogi í gærkvöld. Um var að ræða rúmlega 200 grömm af marijúana og hassi. Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsa muni sem grunur leikur á að séu þýfi. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.