Skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Suðurlands um að 34 ára gamall karlmaður sæti 15 mánaða skilorðsbundnu fangelsi fyrir að hafa ítrekað kynferðismök við 13 ára stúlku. Brotin voru framin árið 1995 og tók dómurinn tillit til þess að langt er síðan. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 800 þúsund krónur í bætur.

Rúm 14 ár voru voru liðin frá brotinu þegar stúlkan kærði það. Maðurinn, sem var 18 og 19 ára þegar brotin voru framin, er nú orðinn fjölskyldumaður. Eru þetta m.a. ástæður fyrir því að refsingin var skilorðsbundin. 

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa haft samfarir við stúlkuna í eitt skipti árið 1994 og í allt að 10 skipti árið 1995. Þá var hann ákærður fyrir að hafa haft við hana munnmök. Maðurinn viðurkenndi að hafa haft samfarir við stúlkuna nokkrum sinnum árið 1995 en neitaði því að hafa haft mök við hana árið 1995 og sýknaði Hæstiréttur hann fyrir þau ákæruatriði.

Hæstiréttur segir sannað, að maðurinn hafi viljað halda sambandi sínu við stúlkuna leyndu. Honum  hefði verið fullljóst um aldur stúlkunnar og hefði brotið gróflega gegn kynfrelsi hennar enda yrði að telja að nítján ára gamall maður hefði mikla yfirburði gagnvart þrettán ára barni. 

Fram kom í dómi héraðsdóms að stúlkan hafi  átt við langvarandi geðræn vandamál að stríða og verið fyrst lögð inn á geðdeild í nóvember 2001, þá nítján ára gömul. Dómurinn taldi hins vegar, að ekki hefði verið sýnt fram á það að öll þau geðrænu vandamál, sem stúlkan hafi þurft að kljást við, stafi af þeirri kynferðislegu misnotkun sem hún var beitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert