Kjararáð hefur ákveðið laun framkvæmdastjóra dótturfélaga félaga sem eru að meirihluta í eigu ríkisins, alls níu framkvæmdastjóra. Hefur kjararáð þar með ákveðið laun allra þeirra sem færðir voru undir ákvörðunarvald ráðsins að undanskildum framkvæmdastjórum dótturfélaga Landsbankans og framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar ehf.