Flug Iceland Express til Alicante, sem fara átti síðdegis á morgun, hefur verið flýtt og er brottför klukkan 22:50 í kvöld. Ástæðan er lokun Keflavíkurflugvallar síðdegis í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu.
Þar kemur einnig fram að flogið verður til London og Kaupmannahafnar í fyrramálið. Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru sem fyrr beðnir að fylgjast vel með, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara.