Fasteignamat lægst á Patreksfirði

Patreksfjörður.
Patreksfjörður. www.mats.is

Fasteignamat er lægst á Patreksfirði af þeim þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni, sem Fasteignskrá Íslands hefur gert samanburð á að beiðni Byggðastofnunar. Hæst er matið í Keflavík og á Akureyri. 

Fasteignskrá reiknaði út fasteignamat og fasteignagjöld á sams konar fasteign vítt um landið. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 fermetrar að grunnfleti og 351 rúmmetrar. Stærð lóðar er 808 fermetrar. Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt núgildandi fasteignamati sem gildir frá 31. desember 2009.

Fasteignamat húss og lóðar á höfuðborgarsvæðinu, miðað við meðaltal, er 34,2 milljónir. Af þeim þéttbýlisstöðum sem skoðaðir voru utan höfuðborgarsvæðisins er matið hæst í Keflavík, 25,8 milljónir, og á Akureyri 25,6 milljónir. Lægst er matið á Patreksfirði, 7,9 milljónir en næst lægst er það í Bolungarvík eða 8,8 milljónir.

„Það er því ljóst að fasteignamatið er mjög mishátt og hefur verið lengi. Á það bæði við um lóðarmat og húsamat. Þessi munur jókst mjög á bólutímanum frá aldamótum síðustu og fram til ársins 2008. Þar sem matið er lægst er það einungis fjórðungur af mati sömu eignar á höfuðborgarsvæðinu. Þessi mikli munur er augljóslega ein af ástæðum þess að lítið sem ekkert hefur verið byggt af íbúðarhúsnæði á vegum einstaklinga víða á landsbyggðinni,“ segir á vef Byggðastofnunar.

Þegar horft er á fasteignagjöldin breytist myndin verulega. „Tekið skal fram að hér er horft til allra svokallaðra fasteignagjalda, það er fasteignaskatts, lóðarleigu, fráveitugjalds, vatnsgjalds og sorpgjalda. Notaðar eru álagningarreglur eins og þær eru í viðkomandi sveitarfélagi. Meðaltalið á höfuðborgarsvæðinu gefur ekki hæstu fasteignagjöldin. Því valda álagningarreglur einstakara sveitarfélaga. Gjöldin eru hæst á Selfossi, 258 þúsund en lægst á Hólmavík 122 þúsund. Gjöldin á Hólmavík eru því innan við 50% af gjöldunum á Selfossi,“ segir á byggdastofnun.is. 

Vefur Byggðastofnunar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert