Gerir athugasemd við fréttaflutning

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, hefur sent frá sér athugasemd til fjölmiðla vegna fréttaúrvinnslu í tengslum við blaðamannafund að loknum ríkisstjórnarfundi í gær.

„Í úrvinnslu einhverra fjölmiðla á orðaskiptum sem urðu á blaðamannafundi í gær að loknum ríkisstjórnarfundi hefur svo til tekist að spurning fréttamanns er orðin að mínum orðum.

Þó málið sé ekki stórt, er það viðkvæmt og mikilvægt að réttum upplýsingum sé komið á framfæri. Á blaðamannafundinum spurði fréttamaður; hvort ég teldi að handtökur í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara sefuðu óánægju almennings.

Þau orð komu ekki úr mínum munni enda væri með öllu óviðeigandi að líta svo á að aðgerðum sérstaks saksóknara væri ætlað að þjóna slíkum tilgangi. Enda var svar mitt að handtökurnar væru til marks um að aukinn þungi væri að færast í rannsókn mála hjá embættinu, verið væri að verja til þess miklum og auknum fjármunum og ósk um gæsluvarðhald væri væntanlega til marks um að málin teldust alvarleg.

Af þessu getur almenningur ráðið að hugur fylgir máli bæði af hálfu stjórnvalda og þeirra sem með rannsóknina fara. Frelsissvipting er hins vegar alltaf alvörumál og einangrunarvist þungbær hverjum þeim sem hana verður að þola,“ segir í athugasemd Steingríms. 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert