Yfirheyrslum yfir Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á Íslandi, lauk hjá embætti sérstaks saksóknara nú undir kvöld. Nokkru áður hafði þeim lokið yfir Steingrími Kárasyni, fyrrverandi framkvæmdarstjóra áhættustýringar bankans.
Ingólfur og Steingrímur voru handteknir við komuna til
landsins í morgun.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir þeim.