Íslensk kona, Linda Björk Magnúsdóttir, hefur verið dæmd í New York ríki í Bandaríkjunum í 21 mánaðar fangelsi fyrir að hafa komist ólöglega til Bandaríkjanna og fyrir að hafa flúið dómhús eftir að hún var handtekin vegna fyrra brotsins.
Í fréttum Ríkisútvarpsins var haft eftir lögmanni Lindu Bjarkar, að hún sé ósátt við dóminn og telji hann full þungan. Linda Björk hefur setið í varðhaldi frá því hún var handtekin í nóvember og henni verður væntanlega vísað frá Bandaríkjunum strax að afplánun lokinni.
Linda Björk var handtekin í Plattsburgh í New York þegar hún kom inn í landið, í gegnum landmærin við Kanada. Hún var flutt í dómhús en tókst að sleppa þaðan út meðan hún beið eftir því að vera leidd fyrir dómara. Hún var síðan handtekin í verslun í Plattsburgh átta stundum síðar í kjölfar umfangsmikillar leitar lögreglu.
Bandarískir fjölmiðlar sögðu, að Lindu Björk hefði verið vísað úr landi í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum og síðan verið meinað að koma inn í landið á nýjan leik.