Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, ætlar ekki
að mæta sjálfviljugur til Íslands í yfirheyrslu hjá sérstökum
saksóknara. Þetta kemur fram í viðtali við Sigurð í Fréttablaðinu í dag.
Alþjóðalögreglan Interpol gaf í gær út
alþjóðlega handtökuskipun á hendur Sigurði, sem hefur neitað að verða
við tilmælum um að koma til yfirheyrslu.
„Ég er algerlega hlessa á
þessum síðustu tíðindum," segir Sigurður.