Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans eru að undirbúa skaðabótakröfur á hendur fyrrverandi stjórnendum og eigendum bankans sem gætu numið allt að 250 milljörðum króna.
Herdís Hallmarsdóttir, sem situr í slitastjórn Landsbankans, sagði við Stöð 2 að ákvörðun um hvort höfðað verði skaðabótamál verði tekin á næstu vikum.