Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í dag um frumvarp um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði við fréttamenn eftir fundinn að málið væri í vinnslu. Óðum styttist í að það yrði kynnt fyrir þingflokkum ríkisstjórnarinnar. Ólíklegt væri hins vegar að málið yrði til lykta leitt á vorþingi.