Félags- og tryggingamálaráðherra og bæjarstjóri Mosfellsbæjar hafa undirritað samning ráðuneytisins og Mosfellsbæjar um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ.
Í samningnum er gert ráð fyrir að Mosfellsbær taki að sér að hanna og byggja 30 rýma hjúkrunarheimili við Hlaðhamra í Mosfellsbæ. Mosfellsbær leggur jafnframt til lóð undir bygginguna. Félags- og tryggingamálaráðuneytið mun á 40 árum greiða Mosfellsbæ hlutdeild í húsaleigu vegna húsnæðis sem ígildi stofnkostnaðar. Félags- og tryggingamálaráðherra gekkst nýlega fyrir lagabreytingu sem heimilar Íbúðalánasjóði að lána sveitarfélögum fyrir öllum byggingakostnaði hjúkrunarheimila og er framkvæmdin í Mosfellsbæ byggð á þeim grunni.
Níu sveitarfélög hafa átt í viðræðum við ríkið um byggingu hjúkrunarheimilis og hefur Mosfellsbær verið í forsvari fyrir þau. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við hjúkrunarheimilið hefjist nú í sumar og það verði tekið í notkun vorið 2012.
Þá hafa þrír lífeyrissjóðir með milligöngu verðbréfafyrirtækisins Virðingar hf. gengið frá samningi um fjármögnun lokaáfanga við byggingu öryggisíbúða hjúkrunarheimilisins Eirar við Fróðengi í Grafarvogi. Um er að ræða lánsfjármögnun allt að ellefu hundruð milljónum króna.