Fíkniefnaleitarhundurinn Skuggi er dauður. Skuggi var orðinn 12 ára gamall þegar hann veiktist og drapst.
Á vef tollgæslunnar kemur fram að Skuggi var keyptur í Hafnarfirði árið 1998, þá rúmlega 9 mánaða gamall. Hann var þriðji fíkniefnahundur Tollgæslunnar í Reykjavík. Hann starfaði með og var í umsjón Ólafs Sigurjónssonar tollvarðar til ársins 2002 en þá tók Stefán Geir Sigurbjörnsson tollvörður við honum. Þeir félagar störfuðu saman til ársins 2004 en þá lét Skuggi af störfum. Skuggi vann að fjölmörgum fíkniefnamálum bæði fyrir embætti Tollstjórans í Reykjavík, Seyðisfirði sem og önnur embætti. Skuggi bjó hjá Stefáni Geir og fjölskyldu og tók við af hundinum Bassa sem forvarnarhundur embættisins í forvarnarstarfinu Nei takk fyrir fermingarbörn. Skuggi var kátur og glaður hundur og verður hans minnst sem mikils prakkara hjá þeim sem þekktu hann.