Kjörstjórn við kirkjuþingskjör hefur staðfest niðurstöðu kosningar til kirkjuþings 2010-2014. Nöfn þeirra, er kosningu hlutu, eru birt á kirkjan.is, vef þjóðkirkjunnar.
Á kirkjuþingi sitja 27 fulltrúar og jafnmargir til vara. Í hópi vígðra aðalmanna eru 9 karlar (75%) og 3 konur (25%), í hópi leikmanna eru 9 karlar (53%) og 8 konur (47%). Kjörsókn var 46% meðal leikmanna og 83% meðal vígðra.