Víðtæk lögregluaðgerð

Þrír Hollendingar voru í áhöfn skipsins.
Þrír Hollendingar voru í áhöfn skipsins. mynd/Einar Bragi

Þrír hollenskir karlmenn eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á fíkniefnamáli. Mennirnir voru allir í áhöfn skips sem kom til hafnar á Seyðisfirði á laugardag, en leit var gerð um borð í skipinu, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Rannsóknin er unnin í samvinnu við lögregluyfirvöld í Hollandi og tengist haldlagningu á þremur tonnum af marijúana þar í landi. 

Aðgerðin hér er víðtæk en að henni hafa komið lögreglu- og tollyfirvöld á Austurlandi auk lögreglumanna frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og embætti ríkislögreglustjóra, tollvarða frá Tollstjóranum í Reykjavík og siglingafræðings frá Landhelgisgæslunni.

Að beiðni sýslumannsembættisins á Seyðisfirði fer  lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nú með rannsókn málsins.

Lögreglan segir ekki hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
 

Skipið er mikið skemmt.
Skipið er mikið skemmt. mynd/Einar Bragi
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert