Samfylkingin harmar sölu til Magma

Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ harmar þá niðurstöðu sem orðin er varðandi nýtingarétt á jarðhita á Reykjanesi. Nýting jarðhitaréttinda á Reykjanesi er nú að langmestu leyti komin í hendur erlendra aðila.

Á stjórnarfundi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ þann 17. maí var eftirfarandi ályktun samþykkt vegna sölu á hlut Geysis Green Energy í HS Orku  til Magma Energy:

Samfylkingin í Reykjanesbæ harmar þá niðurstöðu sem nú er orðin. Nýting jarðhitaréttinda á Reykjanesi er nú að langmestu leyti komin í hendur erlendra aðila. Sala nýtingarréttar auðlindarinnar er minnisvarði um starfshætti meirihluta sjálfstæðismanna undir forystu  Árna Sigfússonar í Reykjanesbæ. Öll loforð um að Hitaveita Suðurnesja yrði ekki seld hafa verið svikin þrátt fyrir að 5.500 kjósendur hafi óskað eftir því að HS yrði áfram í eigu Reykjanesbæjar.

Bókun meirihluta sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ frá 12. júli 2007 er nú orðin að veruleika. Fyrsta áfanga í einkavæðingu orkufyrirtækja er náð.

Samfylkingin í  Reykjanesbæ vill benda á að áður en einkavæðingarferli Hitaveitu Suðurnesja hófst árið 2006 áttu sveitarfélögin á Suðurnesjum bæði land og virkjanir og þau réðu einnig nýtingarréttinum. Það hljómar því hjákátlega þegar talað er um að Reykjanesbær hafi varið auðlindirnar með því að kaupa til baka land sem var í opinberri eigu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert