Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur skapast óvissa um fóðuröflun á öskufallssvæðinu í sumar. Fyrirsjáanlegt er að talsvert viðbótarhey þarf inn á svæðið og því er nauðsynlegt að tryggja nægar heybirgðir fyrir haustið.
Sveitarstjórnir Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps hafa falið
Bændasamtökum Íslands og Búnaðarsambandi Suðurlands að afla upplýsinga um þá
bændur sem eru viljugir til þess að selja gæðahey inn á áhrifasvæði
eldgossins. Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda.