Borgarráð Reykjavíkur bókaði einróma á fundi sínum í morgun áhyggjur vegna yfirlýsinga félagsmálaráðherra um fækkun starfa í heilbrigðisþjónustu, menntakerfi og velferðar- og öldrunarþjónustu.
Var borgarstjóra falið að koma bókun og spurningum frá borgarráði á framfæri við ríkisstjórnina, enda geti fækkun starfa, sem ráðherrar í ríkisstjórn hafi boðað, haft veruleg áhrif á atvinnuástand í Reykjavík.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, segir í tilkynningu að Reykjavíkurborg hafi fullan skilning á að við þær efnahagsaðstæður sem séu ríkjandi í íslensku samfélagi þurfi að hagræða í opinberum rekstri og draga úr útgjöldum. Borgarráð vilji hins vegar benda á að það sé ekki sama hvernig það sé gert og hvar sé borið niður.