Steinþór bankastjóri Landsbankans

Steinþór Pálsson
Steinþór Pálsson

Bankaráð Landsbankans (NBI hf.) hefur ráðið Steinþór Pálsson, framkvæmdastjóra hjá Actavis, til að gegna störfum bankastjóra og tekur hann við af Ásmundi Stefánssyni. Steinþór skrifaði undir ráðningarsamning við Gunnar Helga Hálfdanarson, formann bankaráðs bankans í dag.  Hann mun hefja störf í bankanum 1. júní.

42 umsóknir bárust þegar starf bankastjóra var auglýst, segir í tilkynningu frá Landsbankanum.

„Steinþór er reyndur stjórnandi, sem hefur þá kosti sem bankaráðið hefur leitað að.  Stefnan var að ráða bankastjóra sem væri leiðtogi, öflugur rekstrarmaður með bankareynslu og gæti unnið vel með viðskiptavinum, bankaráði og starfsmönnum bankans. Bankaráðið telur gríðarlega mikilvægt að fyrir Landsbankanum fari maður sem getur leitt hann áfram af þeim krafti og því þori sem þarf til að koma bankanum þangað sem hann á heima, í efsta sæti úrvalsdeildarinnar,“ segir Gunnar Helgi Hálfdanarson, formaður bankaráðs Landsbankans, í tilkynningu.

Steinþór segist í tilkynningunni gera sér grein fyrir að illa ári í íslensku atvinnulífi og að starfsemi Landsbankans skipti miklu um hvernig endurreisn þess gengur. „Ég tel hins vegar að bankinn sé vel mannaður og að staða hans sé þannig að hann geti axlað þá ábyrgð sem honum er falin."

Steinþór er fimmtugura að aldri, kvæntur Áslaugu Guðjónsdóttur tölvunarfræðingi og eiga þau tvær dætur.  Hann lauk prófi  í viðskiptafræði frá HÍ 1985 og MBA name frá Edinborgarháskóla 1995. Hann starfaði m.a. sem framkvæmdastjóri lánasviðs Verzlunarbanka Íslands og síðan hjá Íslandsbanka sem forstöðumaður lánadeildar, fjárfestingarlána útibúaþjónustu, áhættustýringar og fyrirtækjaþjónustu. Árin 2001 og 2002  var hann    fjármálastjóri- og rekstrarstjóri hjá Urði, Verðandi og Skuld en hefur síðan starfað hjá Actavis, þar á meðal sem framkvæmdastjóri á Möltu, í Bandaríkjunum og    nú tæp 2 síðustu árin framkvæmdastjóri Actavis samstæðunnar á Íslandi á sviði stefnumótunar.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert