Samherji hefur ákveðið að greiða öllum starfsmönnum í landi 60 þúsund króna viðbótar orlofsuppbót. Uppbótin verður greidd með launum um næstu mánaðamót og bætist við umsamda orlofsuppbót sem greidd er á sama tíma.
Fram kemur á heimasíðu Samherja, að þetta sé í þriðja skiptið á rúmu ári sem Samherji greiði starfsfólki sínu launauppbót umfram kjarasamninga.