Á sameiginlegum fundi hagsmunaaðila innan hestamennskunnar í dag voru aðilar sammála um að stefnt skuli að því að halda Landsmót hestamanna á áður ákveðnum tíma, það er á Vindheimamelum í Skagafirði 27. júní – 4. júlí.
Fundurinn fór fram í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og var markmiðið að fá heildarsýn yfir stöðu mála vegna hóstapestarinnar svonefndu.
Í byrjun vikunnar skipaði Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir, nefnd sem hefur safnað öllum tiltækum upplýsingum um veikina og gerði Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma, helstu niðurstöður á rannsóknum nefndarmanna og veitti ráðgjöf í ljósi þeirra.
Reynt var að meta þyngd og alvarleika hóstapestarinnar með tilliti til velferðar hrossa og jafnframt hvort faraldurinn muni verða að miklu leyti genginn yfir þegar úrtökur fyrir landsmótið fara fram.
Á fundinum í dag voru menn sammála um að endurskoða fyrirkomulag og dagsetningar á úrtökum og dómum hrossa fyrir landsmótið með það að leiðarljósi að gera sem flestum hrossum mögulegt að vinna sér þátttökurétt.
Hópurinn mun koma saman um næstu mánaðarmót og endurmeta stöðuna.