Síða hefur verið stofnuð á Fésbók þar sem stofnandinn segist muni sprengja Melaskóla ef 1.000 notendur lýsa stuðningi við síðuna. Nú þegar hefur viðkomandi aflað síðunni stuðnings 668 Fésbókarnotenda, en síðan ber heitið „ef 1000 joina þá sprengi ég melaskóla :)“.
Lögreglumaður sem mbl.is ræddi við sagðist ekki vita til þess að ábendingar hefðu borist um síðuna. Lögreglan taki atvik sem þessi hins vegar mjög alvarlega og muni rannsaka málið.
Síðuna má skoða hér.