30 hjúkrunarrými á Egilsstöðum

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs …
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs við undirritunina. mbl.is

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, og Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um byggingu 30 rýma hjúkrunarheimilis fyrir aldraða á Egilsstöðum.

Áætlað er að heimilið verði tekið í notkun á árinu 2012. Fljótsdalshérað og Heilbrigðisstofnun Austurlands hafa jafnframt undirritað viljayfirlýsingu um að HSA taki að sér rekstur hjúkrunarheimilisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

Þar kemur fram að nýja hjúkrunarheimilinu sé ætlað að leysa af hólmi eldra húsnæði fyrir 18 hjúkrunarrými og að auki bætast við 12 ný.  „Áfram verður unnið að því að efla og samræma heimaþjónustu, heimahjúkrun og frekari liðveislu til að bæta þjónustu við aldraða sem kjósa að búa sem lengst heima. Sú bætta þjónusta mun einnig nýtast íbúum hjúkrunarheimilisins,“ segir í tilkynningunni.
 
Heimamenn munu annast hönnun og byggingu húsnæðisins sem fjármögnuð verður með láni frá Íbúðalánasjóði. Samkvæmt samningi mun félags- og tryggingamálaráðuneytið greiða Fljótsdalshéraði hlutdeild í húsaleigu vegna húsnæðisins sem ígildi stofnkostnaðar. 

Fljótsdalshérað verður eigandi húsnæðisins. Fljótsdalshérað leggur heimilinu til lóð og er um þessar mundir unnið að deiliskipulagi fyrir húsnæðið. Íbúðalánasjóður mun lána Fljótsdalshéraði fyrir allt að 100% byggingarkostnaðar, til allt að 40 ára. Ríkissjóður greiðir síðan leigu á samningstímanum sem svarar til 85% af stofnkostnaði og hefjast leigugreiðslur við afhendingu húsnæðisins. Stofnkostnaður sveitarfélagsins er 15%.
 
„Með þessu rætast langþráð áform um byggingu hjúkrunarheimilis á svæðinu. Þörf fyrir nýtt hjúkrunarheimili er óumdeilanleg og brýn og mun bæta til muna aðstæður aldraðra sem þurfa á þessari þjónustu að halda. Á tímum samdráttar, sérstaklega í byggingariðnaði, er auk þess mikilvægt að fá slíkt verkefni til eflingar atvinnu í sveitarfélaginu,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert