Yfir 200 manns ætla að klífa Hvannadalshnjúk um helgina á vegum 66° Norður og Íslenskra fjallaleiðsögumanna.
Þetta er í þriðja sinn sem fyrirtækin standa fyrir fjallgöngunni. Í ár eru það ekki aðeins Íslendingar sem ætla að klífa tindinn því um 20 erlendir blaðamenn verða með í för. Þeir koma m.a. frá LA Times, UK Climbing.com og Adventure Travel Magazine.