Þingmannanefnd, sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, ákvað á fundi sínum nýlega að senda ábendingu til setts ríkissaksóknara um málefni embættismanna sem eru í skýrslunni taldir hafa sýnt af sér vanrækslu í starfi.
Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar, sem birt er á vef Alþingis.
Embættismennirnir eru Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, og þrír fyrrverandi seðlabankastjórar, þeir Davíð Oddsson, Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson.