Styrkur svifryks í Reykjavík fer sennilega yfir heilsuverndarmörkin í dag. Klukkan 11 mældist svifryk á mælistöð Reykjavíkurborgar við Grensásveg 118,2 míkrógrömm á rúmmetra og í Fjölskyldu – og húsdýragarðinum var það 58,9. Meðaltalið frá miðnætti við Grensásveg er núna 67,5 míkrógrömm á rúmmetra. Heilsuverndarmörk svifryks á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Svifryk getur verið að berast víðs vegar að m.a. frá öskufallssvæðinu við Eyjafjallajökull.
Ástæða er til að benda þeim á sem eru með viðkvæm öndunarfæri s.s. lungnasjúkdóma eða astma að forðast mikla útiveru í dag.
Suðaustlægar áttir eru ríkjandi og töluverður vindur er til staðar. Búist er við úrkomu í kvöld sem ætti að slá á rykmengunina.