Færeyska söngkonan, Eivör Pálsdóttir, hefur óskað eftir nálgunarbanni vegna íslensks karlmanns sem hefur elt hana á röndum árum í um þrjú ár. Svo ágengur hefur maðurinn verið að hann hefur búið í tjaldi í garðinum hjá henni í Færeyjum síðustu mánuði. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Þar kom fram að maðurinn hafi fyrir rúmu ári flutt frá Íslandi til Færeyja og síðan hafst við í tjaldi við hús sem hún á í heimabæ sínum Götu. Færeyska dagblaðið Dimmalætting hefur að undanförnu fjallað um málið og tilraunir Eivörar til að fá nálgunarbann á manninn.
Í umfjöllun blaðsins kemur fram að lögreglan í Runavík, sem fer með málið, hafi lítið getað aðhafst. Maðurinn mun standa í þeirri trú að það eina sem standi í vegi fyrir sambandi sínu við Eivöru sé umboðskona hennar, Sigvør Laksá, og hefur hann haft í hótunum við hana. Í viðtali við Stöð 2 harmaði Eivör málið og sagðist óska að maðurinn fengi sálfræðiaðstoð.