Meintum brotum vísað frá

Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson. mbl.is/Kristinn

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá ákæru fyrir meint brot vegna ábyrgðar á persónulegum skattskilum þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar. Saksóknari efnahagsbrota mun kæra niðurstöðuna í Hæstaréttar.

Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, segir að meint brot vegna skattskila Jóns Ásgeirs, Tryggja og Kristínar Jóhannesdóttur sem fyrirsvarsmanna félaganna Gaums og Baugs, standi óbreytt. Þ.e. ábyrgð Jóns Ásgeirs og Kristínar varðandi Gaum, og Jóns Ásgeirs og Tryggva varðandi Baug.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert