Kannbisræktun stöðvuð í austurborginni

Kannabisplanta. Mynd úr safni.
Kannabisplanta. Mynd úr safni. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í austurborginni í hádeginu gær. Við húsleit fundust rúmlega 50 kannabisplöntur. Húsráðandi, karl á þrítugasaldri, játaði aðild sína að málinu.

Aðgerðin er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál, segir í tilkynningu lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert