Ókeypis að hringja út til að kynna Ísland

Við Dettifoss í Jökulsárgljúfrum.
Við Dettifoss í Jökulsárgljúfrum.

Síminn ætlar að taka þátt í þjóðarátakinu sem hrundið hefur verið af stað í ferðaþjónustu, með því að hvetja alla viðskiptavini sína sem eiga heimasíma að hringja án endurgjalds í vini og kunningja í útlöndum á laugardag og sunnudag.

„Stjórnvöld og ferðaþjónustan hafa hrint af stað þjóðarátaki þar sem þjóðin er hvött til þess að senda myndband um allan heim og vill Síminn styðja við þetta spennandi átak með því að hvetja viðskiptavini sína til þess að hringja án endurgjalds í alla sem þeir þekkja í útlöndum,“ segir í tilkynningu frá Símanum. „Þannig geta þeir vakið athygli á átakinu, sagt frá hinu frábæra myndbandi sem sýnir Ísland í sinni bestu mynd og hvatt fólk til þess að sækja landið heim.“

Einu gildir hvort hringt er í heimasíma eða GSM síma erlendis, símtalið kostar ekkert.  „Með þessu vill Síminn leggja sitt af mörkum til þess að átak Ferðaþjónustunnar beri árangur og að sem flestir Íslendingar geti tekið þátt í að koma skilaboðunum á framfæri enda þörfin mikil nú þegar eldgosið hefur valdið fækkun ferðamanna til landsins,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans. „Ég ætla sjálfur að koma mér vel fyrir heima um helgina og hringja í alla þá sem ég þekki í útlöndum og segja þeim að nú sé rétti tíminn til að heimsækja Ísland."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert