„Slepptu ímyndunaraflinu lausu gegn fátækt“ er þema umfangsmikillar auglýsingasamkeppni sem Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í Brussel (UNRIC) hefur hleypt af stokkunum. Keppnin sem nær til allra Evrópulanda hefur að markmiði að kynna Þúsaldarmarkmiðin um þróun (MDGs).
Fyrstu verðlaun eru 5.000 evrur eða jafnvirði um 800 þúsund íslenskra króna. Morgunblaðið og Eyjan.is eru samstarfsaðilar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi en fjölmörg stórblöð í Evrópu leggja keppninni lið og nægir að nefna breska blaðið Guardian, El País á Spáni, La Stampa á Ítalíu og Libération í Frakklandi. Hjarta keppninnar er vefsíðan www.wecanendpoverty.eu. Keppnin er opin öllum íbúum Evrópuríkja, jafnt fagmönnum sem áhugamönnum sem hafa áhuga á að leggja lóð sína á vogarskálarnar í baráttunni gegn fátækt í heiminum.
„Við höfum nú þegar fengið 300 tillögur frá 25 löndum og keppnin er varla byrjuð,“ segir Árni Snævarr, skipuleggjandi keppninnar á upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, UNRIC. „Heimsóknir á síðuna nema tugum þúsunda, þannig að það er ekki aðeins góð verðlaun í boði, heldur gott tækifæri fyrir hönnuði að koma sér á framfæri. Sigurauglýsingin verður birt í samstarfsfjölmiðlum okkar og þrjátíu bestu verða settar á sýningu, þannig að það er til mikils að vinna.“
Sigurvegarinn fær 5.000 evrur í verðlaun frá spænsku ríkisstjórninni við sérstaka verðlaunaafhendingu í Madrid í byrjun september, skömmu fyrir leiðtogafund aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um Þúsaldarmarkmiðin í New York.
Keppnin er opin öllum evrópskum borgurum og íbúum evrópskra ríkja, en allir, hvar sem þeir eru búsettir, geta greitt atkvæði um bestu auglýsinguna. Keppnin stendur yfir til loka júní 2010, en þá verða valdar 30 auglýsingar sem keppa til úrslita. 15 verða valdar af almenningi en 15 af skipuleggjendum. Sigurvegarinn verður svo valinn úr hópi þessara þrjátíu af dómnefnd skipaðri þekktum evrópskum sérfræðingum í auglýsingum og markaðssetningu, auk listamanna, hönnuða og sérfræðinga SÞ.
„Ef þetta frumkvæði verður til þess að hífa aðeins eina manneskju upp úr sárustu fátækt, þá er það þessi virði,“ segir dómnefndarmaðurinn og bandaríski ljósmyndarinn Gary Knight. Formaður dómnefndarinnar er franski auglýsingafrömuðurinn Jacques Séguéla, varaformaður stjórnar alþjóða-auglýsingafyrirtækisins Havas en auk hans sitja í henni hönnuðurinn Piet Boon, belgíski tískuhönnuðurinn Martin Margiela og aðtoðarfamkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Kyo Akasaka.
Hægt er að fá nánari upplýsingar - þar á meðal keppnisreglur – og skila inn framlögum í keppnina á vefsíðunni www.wecanendpoverty.eu. Einnig má hafa samband við Afsané Bassir-Pour (bassirpour@unric.org) í síma 00 32 2 788 84 50) eða Árna Snævarr (snaevarr@unric.org) í síma 00 32 788 84 67).