Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa fest kaup á sex björgunarbátum, fimm af gerðinni Atlantic 75 og einn Atlantic 21. Björgunarsveitir landsins hafa undanfarið verið að efla sjóbjörgunarþátt sinn enda ekki vanþörf á, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu.
Tilkoma strandveiða og niðurskurður hjá opinberum aðilum gera það að verkum að verkefni hafa reynst ærin, sem dæmi má nefna að björgunarskip félagsins hafa í síðustu viku farið um 15 sinnum til aðstoðar bátum í vanda við Íslandsstrendur.
Nýju bátarnir bætast við 14 björgunarskip og um 70 léttabáta sem þegar eru í eigu björgunarsveita allt í kringum landið. Það eru björgunarsveitirnar Gerpir á Neskaupsstað, Geisli á Fáskrúðsfirði, Ársæll í Reykjavík, Suðurnes í Reykjanesbæ, Björg á Eyrarbakka og Brimrún á Eskifirði sem keypt hafa bátana.
Frá árinu 1998 hafa Atlantic 21 bátur verið í notkun hjá björgunarsveitum hér á landi. Bátarnir hafa verið keyptir notaðir frá Konunglega breska sjóbjörgunarfélaginu (RNLI) og svo er einnig með hina sex nýju báta en Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur keypt báta frá því félagi síðan árið 1929.