Ekki hætta á flúoreitrun

Mælingar sýna að skepnum stafar ekki mikið hætta af flúor …
Mælingar sýna að skepnum stafar ekki mikið hætta af flúor í öskunni. Ómar Óskarsson

Lít­il hætta er á flúor­eitrun frá ösku sem kom úr Eyja­fjalla­jökli. Þetta má lesa út úr niður­stöðum á efna­grein­ing­um flúors í gróður­sýn­um sem tek­in voru 26. maí s.l.

Sam­kvæmt sýn­un­um er ekki ástæða til þess að ótt­ast flúor­meng­un í gróðri eins og staðan er. Þol­mörk naut­gripa og sauðfjár eru 30-40 mg/​kg F þur­refn­is og 70-100 mg/​kg F þur­refn­is hjá sauðfé, að því er kem­ur fram á vef Bænda­blaðsins.

Öll sýn­in eru vel und­ir þol­mörk­um sauðfjár. Sýni á Rauf­ar­felli er við þol­mörk naut­gripa og hrossa og eina sýnið sem er yfir þeim er frá Efstu-Grund. Það var hins veg­ar mjög lítið sýni og verður að taka niður­stöðum þess með fyr­ir­vara.

Sam­kvæmt þessu er ekki ástæða til þess að halda bú­fénaði inni vegna hættu á flúor­eitrun.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert