Laminn með felgulykli í höfuðið

Borgarnes.
Borgarnes. mbl.is/Sigurður Bogi

Maður var laminn í höfuðið með felgulykli á tjaldstæði í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í nótt. Að sögn lögreglu sinnaðist mönnum eitthvað á tjaldstæðinu þannig að upp úr sauð. Maðurinn sem fyrir líkamsárásinni varð leitaði aðstoðar á næstu heilsugæslu en áverkar hans voru ekki taldir alvarlegir.

Enginn gisti fangageymslur vegna atviksins .Töluverð umferð var í norðanátt frá höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi en virðist hafa gengið slysalaust fyrir sig en einn maður var tekinn við Borgarnes grunaður um ölvun við akstur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert