„Þetta er nú ein aumasta smjörklípa sem ég hef heyrt“ sagði Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður um svar Jóhönnu Sigurðardóttur við fyrirspurn þingmannsins um launakjör Más Guðmundssonar Seðlabankastjóra. Jóhanna skoraði á Sigurð Kára að gera grein fyrir þeim sem styrktu hann í prófkjöri fyrst hann væri talsmaður gegnsæis.