Ráðist var á karlmann inni á karlasalerni á skemmtistaðnum Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn aðfaranótt laugardags. Að sögn lögreglunnar á Selfossi hafði maðurinn farið inn á snyrtinguna þegar maður réðist aftan að honum og hélt honum í taki á meðan annar sló hann hnefahögg í andlitið.
Við höggin losnaði um framtennur fórnalamsins, segir lögregla. Málið er í rannsókn.