Fjármálaráðherra sagði að yfirlýsing setts ríkissaksóknara segði að ekki væri tilefni til rannsóknar að svo stöddu. Mikilvægt væri að mál eins og þetta væri botnað. Settur ríkissaksóknari sagði í gær ekki ástæðu til að rannsaka frekar ályktanir rannsóknanefndar Alþingis gegn fyrrum Seðlabankastjórum.
Aðspurður hvort hann teldi að ganga hefja þyrfti rannsókn sagði Steingrímur það ekki í sínum verkahring að segja settum ríkissaksóknara fyrir verkum.