Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir ljóst að ekki sé svigrúm til launahækkana að minnsta kosti næsta árið. Um ummæli félagsmálaráðherra að fyrsta skuli launahækkanir hins opinbera til ársins 2013 segir hann að of snemmt sé að ákvarða um slíkt nú. Verkefnið núna sé að rétta við fjárlagahalla þessa árs.