Orkuvernd er nafn nýrrar verðstefnu Orkunnar en samkvæmt henni er sama verðið á öllum bensínstöðvum Orkunnar innan sama landsvæðis.
Við ákvarðanir um verðlagningu styðjast starfsmenn Orkunnar við verðupplýsingar sem birtast á www.bensinverd.is. Notast verður við sömu skiptinguna í landssvæði og þar birtist, en www.bensinverd.is er óháð vefsíða sem hefur haldið úti verðsamanburði á eldsneyti undanfarin ár, samkvæmt tilkynningu frá Skeljungi sem á og rekur Orkuna.
Handhafar Orkulykla, Orkukorta og korthafar Skeljungs fá svo eftir sem áður afslátt af því verði sem er á verðskilti hverrar stöðvar.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs, segir í tilkynningu:
„Við hjá Skeljungi höfum fundið fyrir óánægju margra okkar viðskiptavini og sömuleiðis þrýstihópa með að töluverður munur getur verið á eldsneytisverði Orkustöðva sem jafnvel eru mjög nálægt hvorri annarri.
Við viljum gera neytendum auðveldara að nálgast ódýrasta eldsneytið hverju sinni. Neytendur geta framvegis treyst því að starfsmenn Orkunnar muni leita allra leiða til að halda verðinu á stöðvum fyrirtækisins lægra en hjá öðrum fyrirtækjum.”