Landlæknir hefur fengið á annan tug aðfinnslna og kærumála vegna svonefndrar detox-meðferðar sem Jónína Benediktsdóttir býður upp á.
Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir að ráðleggingar um að borða hollan mat, hreyfa sig o.fl. séu af hinu góða en á hinn bóginn sé út í bláinn að fullyrða að detox-meðferð spari ríkinu hundruð milljóna á ári.