Búast má við töfum á Vesturlandsvegi

Búast má við töfum í kvöld og í nótt. Myndin …
Búast má við töfum í kvöld og í nótt. Myndin er úr myndasafni. mbl.is/Júlíus

Unnið verður að því að tengja nýjan kafla Vesturlandsvegar við Leirvogstungu í Mosfellsbæ í nótt, aðfararnótt 11. júní. Að sögn Vegagerðarinnar má búast við töfum á umferð frá klukkan 20 í kvöld til klukkan 10 í fyrramálið.

Ökumenn eru beðnir um aka varlega um vinnusvæðið og virða merkingar um hámarkshraða en sérstök athygli er vakin á því að á vissum kafla vegarins
verður hámarkshraði tekinn niður í 30 km á klst.

Einnig þarf á tímabili að minnka akreinasvæðið niður í eina akrein og verðu umferð stjórnað á meðan á því stendur. Að tengingu lokinni verður umferð hleypt á nýjan kafla vegarins.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert