„Tóku fjölmiðla með áhlaupi“

„Besti flokkurinn tók bæði fjölmiðla og kjósendur með áhlaupi“ segir Þorbjörn Broddason prófessor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands. Hann segir að enginn hafi vitað hvernig ætti að taka á framboðinu aðspurður um að túlka niðurstöðu könnunar Credit Info um umfjöllun í aðdraganda kosninga.

Besti flokkurinn fékk áberandi meiri jákvæða umfjöllun en aðrir flokkar en á hæla hans kom þó Sjálfstæðisflokkurinn. Ástæðuna fyrir því hversu hátt Sjálfstæðisflokkurinn mælist, bæði í jákvæðri umfjöllun sem og í tíðni frétta segir hann væntanlega þá að sá flokkur sem haldi um stjórnartaumanna stjórni einnig umræðunni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert