Boða til flokksráðsfunda

Flokksráð VG kom saman til fundar á Akureyri í vetur.
Flokksráð VG kom saman til fundar á Akureyri í vetur. Skapti Hallgrímsson

Bæði Samfylkingin og VG hafa boðað til flokksráðsfunda helgina 25.-26. júní. Þessa sömu helgi heldur Sjálfstæðisflokkurinn landsfund þar sem m.a. verður kosinn nýr varaformaður.

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar verður haldinn 26. júní nk. í Félagsheimili Seltjarnarness. Meginefni fundarins verða úrslit sveitarstjórnarkosninganna. Þetta er þriðji flokksstjórnarfundurinn sem flokkurinn heldur á þessu ári.

Dagskrá flokksráðsfundar VG hefur ekki verið auglýst, en gera má ráð fyrir að úrslit sveitarstjórnakosninganna verði þar einnig til umræðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert