Dr. Gunni formaður Strætó

Dr. Gunni er duglegur að hjóla. Þessi mynd var tekin …
Dr. Gunni er duglegur að hjóla. Þessi mynd var tekin af honum á Ægisíðunni, en hann var að sækja dóttur sína Elísabetu Láru í leikskólann. Ómar Óskarsson

Dr. Gunni (Gunnar Lárus Hjálmarsson) var kjörinn formaður Strætó bs. á fundi borgarstjórnar í dag. Einar örn Benediktsson var kjörin stjórnarformaður Sorpu og Haraldur Flosi Tryggvason er ný stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Þau eru öll fulltrúar Besta flokksins.

Haraldur Flosi er lögfræðingur að mennt, en hann er einnig kunnur fyrir að vera saxafónleikari í hljómsveitinni Júpiters.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert