Fjárfest fyrir milljarð

Frá undirrituninni í dag.
Frá undirrituninni í dag.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna gerði í dag bindandi samkomulag við Icelandair Group hf. þess efnis að sjóðurinn muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 1 milljarð króna og eignast með því 12% hlut í félaginu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Icelandair Group.

Þar segir að Lífeyrissjóður verzlunarmanna muni skrá sig fyrir 400 milljónum nýrra hluta á genginu 2,5. Alls fyrir einn milljarð króna.

Samningurinn sé gerður í kjölfar samnings Framtakssjóðs Íslands um kaup á nýju hlutafé í Icelandair Group fyrir þrjá milljarða króna sem tilkynnt hafi verið um í gær. Kaup sjóðsins fari fram á sama gengi.

Þá segir að samningurinn við Lífeyrissjóð verzlunarmanna sé gerður með hefðbundnum fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.

„Með samningnum hefur Icelandair Group aflað samtals 4 milljarða af reiðufé með sölu á nýju hlutafé á tveimur dögum. Auk þess hafa stærstu lánveitendur félagsins skuldbundið sig til að breyta skuldum að
fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum.

Við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins er gert ráð fyrir að skuldir þess verði lækkaðar um ríflega 10 milljarða króna m.a. með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins, eins og fram kom í tilkynningu til Kauphallarinnar þann 25. mars sl.

Gert er ráð fyrir að fjárfestum og almenningi verði gefinn kostur á að leggja félaginu til nýtt hlutafé í hlutafjárútboðum síðar á árinu,“ segir í tilkynningu..

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert