„Já, maður hlýtur að græða eitthvað á því að pabbi manns sé borgarstjóri. Maður verður bara að pressa á hann“ segir Dagur Kári Gnarr Jónsson, sonur Jóns Gnarr. Dagur Kári vinnur í garðvinnu hjá Landspítalanum í sumar. Hann er sannfærður um að pabbi sinn verði góður borgarstjóri.