Vilja að ESB-umsóknin verði dregin til baka

Fánar við höfuðstöðvar Evrópusambandsins.
Fánar við höfuðstöðvar Evrópusambandsins. Reuters

Ísafold, félag ungs fólks gegn ESB-aðild, lýsir yfir stuðningi við þingsályktunartillögu þess efnis að draga beri umsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka.

Fram kemur í ályktuninni Ísafoldar að Alþingi hafi á sínum tíma sótt um aðild án umboðs þjóðarinnar og skoðanakannanir sýni að andstaða við aðild sé mikil.

Undirbúningi við umsóknarferlið sé ábótavant, auk þess sem ferlið krefjist mikilla fjármuna og tíma þegar mörg þörf málefni bíða. Þingsályktunartillagan sé mikið gleðiefni og vonast Ísafold til að hún verði samþykkt á Alþingi.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert