Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, hefur óskað eftir því að haldinn verði fundur í viðskiptanefnd til að ræða dóm Hæstaréttar vegna gengistryggðra lána. Mikilvægt er að fá á fund nefndarinnar Efnahags- og viðskiptaráðherra, fulltrúa fjármálafyrirtækja, Bankasýslunnar og Hagsmunasamtaka heimilanna, að sögn Guðlaugs Þórs.