Viðskiptaráðuneytið segir að mál sem varði lögmæti gengistryggðra lána varði fyrst og fremst aðila máls en hafi einnig almenn áhrif á viðskipti fjármálafyrirtækja og lántakenda. Stjórnvöld hafi fylgst náið með ferli þessara dómsmála og hafi látið greina möguleg áhrif niðurstaðna Hæstaréttar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, sem er eftirfarandi:
„Hæstiréttur hefur kveðið upp dóma í málum er varða lögmæti gengistryggðra lána. Þessi mál varða fyrst og fremst aðila máls en hafa einnig almenn áhrif á viðskipti fjármálafyrirtækja og lántakenda.
Stjórnvöld hafa fylgst náið með ferli þessara dómsmála og hafa látið greina ítarlega áhrif mögulegra niðurstaðna Hæstaréttar. Ákvarðanir um aðgerðir af hálfu stjórnvalda verða teknar á grundvelli þessarar greiningar.
Nánar verður skýrt frá þeim ákvörðunum á allra næstu dögum og í framhaldi af umfjöllun ríkisstjórnarinnar og að höfðu víðtæku samráði um málið.“